
Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon.
Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms - ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innleitt á samfélagsmiðlum, innflytjendamál og tálsýnin um inngildingu allra, auk ummæla dómsmálaráðherra um að ekki sé hægt að treysta dómstólum.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

