
Viðtal | Ofurgreind, valdatilfærsla og eilíft líf með Heiðari Guðjónssyni og Kára Stefánssyni
Hér leitum við svara við stórum spurningum um framtíð mannkynsins, þjóðernisins og íslenska hagkerfisins á miklum umbrotatímum. Leitað er til tveggja góðvina þáttarins, Heiðars Guðjónssonar, fjárfestis og athafnamanns, og Kára Stefánssonar, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Kári segir að svör gervigreindarlíkana á sviði erfðafræði og taugasjúkdóma hafi verið lítils virði fyrir einu og hálfu ári en séu nú í flestu betri en hans eigin þekking. Hann nefnir þrjár hættur: að tæknin sé notuð til að skaða samfélagið, að fólk hætti að leggja sjálfstætt mat á hlutina og að líkönin taki sjálfstæðar ákvarðanir. Hann telur einnig að gervigreind þjappi valdi á fáar hendur. Ísland geti þó nýtt tæknina vel, því þjóð sem er þúsund sinnum stærri „eigi ekki roð í okkur“ ef skynsamlega er á málum haldið. Heiðar segir enn ekkert benda til þess að vaxandi atvinnuleysi á Íslandi helgist af breytingum vegna gervigreindarinnar og segir talsvert lífsmark í ýmsum þeim greinum sem féllu líklega þar undir. Breytinga sé þó að vænta. Hann telur að einmenningsfyrirtæki og smærri fyrirtæki verði sterkari og að skapandi hugsun fái aukið vægi, og að hér á Íslandi séu tækifærin margvísleg vegna náttúrulegra aðstæðna. Ef taka ætti það saman hljómar hann töluvert minna hallur undir dómsdagsspárnar en margur annar. En best að hlusta bara. 00:00 Kynning 05:00 Gervigreind í læknisfræði 06:30 Hvað á ungt fólk að læra? 11:30 Nóbelsverðlaun Hassabis og saga sjálfvirknivæðingar 13:00 Vinnumarkaður og fólksfjöldaþróun 15:30 Kapphlaupið um gervigreind 18:00 Orka, kæling og gagnaver á Íslandi 22:00 Samþjöppun valds 27:30 Völd ríkisins og tæknifyrirtækja 33:00 Kapítalismi og félagshyggja 35:30 Skólakerfið 41:00 Erfðir, menntun og greind 43:30 Kennslustofan og tæknin 46:30 Alþjóðlegt samstarf 48:00 Þrjár hættur gervigreindar 52:30 Atvinnuleysi á Íslandi 57:00 Langlífi 01:01:00 Lokaorð Efnisyfirlit
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

