Skip to content
PodSubs
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEvents
More
BlogPodCred
Menu
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEventsBlogPodCredNetworksSign in
Join nowSign in
  • Shows
  • People
  • Jobs
  • News
  • More
    • Guests
    • Events
    • Blog
    • PodCred
    • Networks
    Join nowSign in

Skattaspjallið

Skattaspjallið artwork

#8 - Sprenging í útgjöldum til útlendingamála frá 2004

Jul 23, 202539 minAudio
ShareXLinkedInFacebookWhatsAppEmail

Hvaða tölum getum við treyst þegar kemur að málefnum útlendinga og hælisleitenda? Svarið er ekki eins einfalt og margir telja eins og kemur fram í Skattaspjallinu í dag þar sem Sigurður Már Jónsson ræðir við þá Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson gagnasérfræðinga Samtaka skattgreiðenda. Þeir Róbert og Arnar halda áfram að færa okkur fróðleik úr ríkisreikningi sem er öðrum hulin, meðal annars beinan kostnað ríkisins vegna annars vegar alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og hins vegar hælisleitenda. Hvoru tveggja er í vissum skilningi útlendingamál. Þeir félagar hafa tekið saman upplýsingar sem varpa ljósi þróun útgjalda á tímabilinu frá 2004 til og með 2024. Algjör sprenging hefur orðið í báðum þáttum á tímabilinu. Heildarútgjöld námu um 890 milljónum árið 2004 en hvorki meira né minna en 34 milljörðum árið 2024. Þar af voru heildarútgjöld til þróunarmála um 13,5 milljarðar en útgjöld vegna hælisleitenda 20,5 milljarðar samanborið við 220 milljónir árið 2012 þegar útgjöld vegna hælisleitenda voru fyrst sérgreind í ríkisbókhaldi. Þegar ofan í þessar tölur er kafað kemur margt undarlegt í ljós eins og kemur fram í samtalinu. Hér má finna ítarlegar upplýsingar um útgjöldin ásamt Excel skjölum: https://www.skattgreidendur.is/sprenging-i-utgjoldum-til-utlendingamala-fra-2004/ Hægt að er að fylgjast með starfi samtakana og skrá sig á póstlista á skattgreidendur.is og með því að fylgja samtökunum á Facebook eða X. Hægt er að styrkja starf samtakanna hér: skattgreidendur.is/styrkja

Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

Hosts and Guests

Nobody is credited on this episode yet.

Credit the people on this episode

Be the first to rate this episode

More episodes

All episodes
  1. #38 - Skafti og fjárlögin

    Nov 15, 202627 minAudio

    Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 er núna til umfjöllunar í fjárlaganefnd eftir 1. umræðu á Alþingi. Varla er hægt að segja að það örli á miklu aðhaldi eða sparnaði af hálfu stjórnarliða. Á sama tíma hækka skattar...

    Credit the people on this episode

  2. #37 - Á ríkissjóður að erfa fólk?

    Nov 4, 202618 minAudio

    Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir frumvarpi til laga um afnám erfðafjárskatts á Alþingi fyrir stuttu. Hún segir að það sé tímabært að afnema erfðafjárskatt enda sé hér um að ræða mjög...

    Credit the people on this episode

  3. #36 - Hvert stefnir í útgjaldaþróun ríkisins?

    Oct 25, 202618 minAudio

    Hvaða tölum getum við treyst í fjárlagaumræðunni og hvað vita skattgreiðendur landsins í raun og veru um útgjöld og útgjaldaþróun? Staðreyndin er sú að ríkisvaldið er furðu hirðulaust um að greina og meta þróun...

    Credit the people on this episode

  4. #35 - Skattlaust ár komið til að vera?

    Oct 2, 202622 minAudio

    Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Skattaspjallsins að þessu sinni. Fyrir stuttu kom út ný bók hans, Villigötur valdsins - til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og...

    Credit the people on this episode

  5. #34 - Hvað borgar þú í skatta?

    Sep 20, 202622 minAudio

    Það er þekkt spakmæli að ekkert er víst nema skatturinn og dauðinn. Allir borga skatta með einum eða öðrum hætti en veit fólk almennt hvað það borgar í skatta? Nú hefur Viðskiptaráð smíðað gagnvirka skattareiknivél til...

    Credit the people on this episode