
#38 - Skafti og fjárlögin
Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 er núna til umfjöllunar í fjárlaganefnd eftir 1. umræðu á Alþingi. Varla er hægt að segja að það örli á miklu aðhaldi eða sparnaði af hálfu stjórnarliða. Á sama tíma hækka skattar og gjöld. Til að ræða fjárlagagerðina og hvaða hættur steðja nú að skattgreiðendum á haustmánuðum kemur Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, í Skattaspjallið til Sigurðar Más Jónssonar. Um leið verður aðeins tæpt á því mikla starfi sem unnið er að hjá Samtökum skattgreiðenda sem hafa verið að skrifa skýrslur og senda inn umsagnir við þingmál. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.
