Skip to content
PodSubs
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEvents
More
BlogPodCred
Menu
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEventsBlogPodCredNetworksSign in
Join nowSign in
  • Shows
  • People
  • Jobs
  • News
  • More
    • Guests
    • Events
    • Blog
    • PodCred
    • Networks
    Join nowSign in

Popparasögur

Popparasögur artwork

#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita

Jul 7, 202655 minAudioEpisode 19
ShareXLinkedInFacebookWhatsAppEmail

Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð. Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir, Land og synir og Sólstrandargæjarnir. Auk þess verða margs konar viðburðir í bænum í vikunni fyrir Bræðsluna. Í þessum þætti verður rætt við Magna Ásgeirsson, heimamann og einn af stofnendum og skipuleggjendum Bræðslunnar, um hvernig hátíðin varð til, hvernig hún hefur þróast í gegnum árin og hvernig hún hefur haldið í sinn einstaka anda þrátt fyrir sívaxandi vinsældir. Við förum yfir undirbúninginn fyrir hátíðina í ár, hvernig dagskráin verður til og hvað þarf að gerast áður en fyrstu tónarnir hljóma í gömlu bræðslunni. Við rifjum upp eftirminnileg tónlistaratriði, ræðum áhrif Bræðslunnar á samfélagið á Borgarfirði eystri, lítum á dagskrá ársins og veltum fyrir okkur framtíð hátíðarinnar. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði - Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

Hosts and Guests

Nobody is credited on this episode yet.

Credit the people on this episode

Be the first to rate this episode

More episodes

All episodes
  1. #42 | Eyþór Arnalds og Tappi Tíkarrass, Todmobile og tónlistin sem sleppir ekki takinu

    Nov 24, 202652 minAudio

    Eyþór Arnalds á að baki langan og fjölbreyttan feril í tónlistinni. Hann fór úr pönkinu í sellónám, úr sellónámi í rokkið, úr rokkinu í danstónlist, klassíska sellótónlist, aftur í rokkið og svo aftur í pönkið. Í þessu...

    Credit the people on this episode

  2. #41 | Snorri Helgason og að halda alltaf áfram að halda áfram

    Nov 17, 20261 hr 14 minAudio

    Snorri Helgason kom fram á sjónarsviðið með Sprengjuhöllinni fyrir um 20 árum síðan og hljómsveitin bókstaflega keyrði yfir Ísland og íslenskan tónlistarbransa misserin þar á eftir. Síðan hefur hann gefið út sjö...

    Credit the people on this episode

  3. #40 | Daníel Andri Eggertsson og sögurnar af goðsögnum íslenskrar tónlistarsögu

    Nov 10, 20261 hrAudio

    Daníel Andri Eggertsson, gítarleikari í hljómsveitinni Færibandinu, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum að undanförnu fyrir myndbönd þar sem hann rifjar upp sögur af tónlistarfólki sem setti svip sinn á íslenskt...

    Credit the people on this episode

  4. #39 | Einar Örn Jónsson og allt um það að vera Nakinn í Paradís þegar Jólin eru að koma

    Nov 3, 20261 hr 12 minAudio

    Einar Örn Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi undanfarna áratugi. Hann gaf ungur út sólóplötu með eigin efni, hann spilaði dinner-tónlist fyrir matargesti á Lækjarbrekku, hann hefur síðustu ár spilað með...

    Credit the people on this episode

  5. #38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól

    Oct 27, 202639 minAudio

    Fjórði og síðasti hlutinn um hljómsveitina Sniglabandið. Í síðasta hluta fóru þeir Diddi og Skúli yfir merkilega ferð bandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir mútuðu löggunni, voru eltir af mafíunni, lentu í...

    Credit the people on this episode