
#42 | Eyþór Arnalds og Tappi Tíkarrass, Todmobile og tónlistin sem sleppir ekki takinu
Eyþór Arnalds á að baki langan og fjölbreyttan feril í tónlistinni. Hann fór úr pönkinu í sellónám, úr sellónámi í rokkið, úr rokkinu í danstónlist, klassíska sellótónlist, aftur í rokkið og svo aftur í pönkið. Í þessu viðtali segir Eyþór frá tímanum með Tappa Tíkarrassi, Rokki í Reykjavík, þegar hann hætti í rokkinu 16 ára gamall til að fara í sellónám og tónsmíðar, hvernig Todmobile varð óvænt til, þegar hann sannfærði Björk og Andreu Gylfa um að ganga til liðs við hljómsveitir sínar, útrásinni með hljómsveitinni Bong, þegar hann stýrði upptökum hjá hljómsveitum eins og Jet black Joe og Unun og því hvernig tónlistin togar hann alltaf aftur til sín. Hann talar einnig um endurkomurnar, að finna stöðugt nýjar leiðir til að ögra sér í tónlist, tónverkin sem hann semur og útsetur fyrir selló, að vinna með sinfó og gervigreindina og hvernig hún mun hafa áhrif á tónlist og tónlistarsköpun. Kölski - herrafataverslun - kolski.is | Procedo - Jákvæð áhrif - procedo.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.
