
Úr 600 milljónum í 100 milljarða: stefnan á bak við netverslunarrisann Boozt
Í þessum þætti köfum við ofan í vegferð BOOZT, fyrirtækis sem hefur á tiltölulega skömmum tíma byggt upp eitt öflugasta netverslunarkerfi Norðurlanda. Við ætlum ekki bara að segja söguna heldur rýna í hvað liggur raunverulega að baki árangrinum og hvað önnur fyrirtæki geta lært af þessari vegferð. Við ræðum sérstaklega stefnu, omnichannel nálgun, mælikvarða, hlutverk stjórnar ásamt framtíðarhorfum og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu. Viðmælandi minn er Jón Björnsson stjórnarmaður hjá BOOZT. Ef þú hefur áhuga á að vita meira um: · Þróun Boozt frá startup í risaveldi · Af hverju Boozt lítur á sig sem tæknifyrirtæki, ekki bara verslun · Last mile leyndarmálið sem breytti leiknum · Mælikvarðana sem skipta máli og þá sem geta drepið vöxt · Hvað gerist þegar birgjar sjá gögnin þín í rauntíma · Hlutverk stjórnamanna, stjórnarformanns og samsetning stjórna · Hvað stjórnendur fyrirtækja eiga aldrei að hætta að gera · Gervigreindina og framtíðina .... og margt fleira. Þá viltu ekki missa af þessum þætti!
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

