
Lokaðu hringnum er leyndarmálið á bakvið framúrskarandi viðskiptavinaupplifun (CX)
Hvers vegna eru sum fyrirtæki mun betri en önnur í að halda í viðskiptavini sína? Í þessum þætti ræði ég við Kára Þór Rúnarsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Brilliant, um upplifun viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði (B2B) og hvers vegna hún er orðin einn mikilvægasti samkeppnisþáttur fyrirtækja sem vilja vera í fremstu röð. Við ræðum meðal annars: Hvers vegna fyrirtækjamarkaður og neytendamarkaður krefjast ólíkrar nálgunar Af hverju NPS segir of aðeins hluta sögunnar Hvernig fyrirtæki geta minnkað brottfall viðskiptavina Customer Lifetime Value og aðra lykilmælikvarða sem skipa máli Hvers vegna flest fyrirtæki safna gögnum án þess að nýta þau Hvað felst hugtakinu "Closing the Loop" Hvernig gervigreind getur stutt við betri viðskiptavinaupplifun Stöðu viðskiptavinaupplifunar á Íslandi samkvæmt nýjustu rannsóknum Kári deilir einnig hagnýtum ráðum um hvernig fyrirtæki geta byggt upp markvissa stefnu í upplifun viðskiptavina og tengt hana beint við tekjur, tryggð og langtímaárangur. Þáttur fyrir stjórnendur, markaðsfólk, sölufólk og alla sem vilja byggja upp sterkari og arðbærari viðskiptasambönd.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

