
Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa
Í þessum þætti fáum við innsýn í vegferð ELKO í átt að metnaðarfullu markmiði: að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði - sem náðist á þessu ári með afgerandi hætti. Ég ræði við Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóra ELKO, um hvað liggur raunverulega að baki þessum árangri. Við köfum í hvernig ELKO hefur umbreytt stefnu sinni - frá því að keppa fyrst og fremst á verði og úrvali yfir í að verða traustur ráðgjafi fyrir viðskiptavini. Í þættinum ræðum við meðal annars: · Hvernig rödd viðskiptavina mótar stefnu · Gagnadrifna ákvarðanatöku og mælanlegan árangur · Innleiðingu omnichannel og einstaklingsmiðaða upplifun · Hlutverk gervigreindar og stafrænnar þróunar Í lok þáttarins deilir Óttar hagnýtum ráðum fyrir stjórnendur og teymi sem vilja ná lengra. Þessi þáttur er fyrir alla sem vilja: · byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini · taka betri ákvarðanir byggðar á gögnum · og leiða raunverulega umbreytingu í rekstri Sérstakar þakkir til Hans Pjetursson fyrir frumsamið stef þáttarins 🎶
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

