
hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir
Gestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna. Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona við eldhúsborð. Borðið var þakið innkaupapokum og pökkum. Hún var með fartölvu í kjöltunni og barn á brjósti og var að slá inn pantanir. Þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni ýtti hún tölvunni frá sér og sagði: „Nei. Nú vil ég ekki taka við fleiri pöntunum. Þetta er of mikið." Hún var í fæðingarorlofi. Hún hafði flutt út til að hægja á sér, baka pönnukökur og njóta þess að vera með strákunum sínum. Í staðinn stofnaði hún fyrirtæki. Í dag eru verslanirnar á þriðja tuginn og starfsfólkið hátt í tvö hundruð. Hún hefur tekið hvert vörumerkið á fætur öðru,merki sem fæstir hér þekktu og gert þau að einhverju sem heil þjóð kann skil á. Hún er með ekkert skipurit, því fólkið hennar hefur ábyrgðarhlutverk frekar en stað í skipuriti. Krakkarnir hennar eru með í rekstrinum og mamma hennar líka. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

