
hún hlaðvarp #25 Hrefna Sigfinnsdóttir
Gestur þáttarins er Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, forstjóri Creditinfo á Íslandi, varaformaður stjórnar Stefnis og stjórnarkona í Viðskiptaráði. Í dag ætlum við að tala um það hver heldur á peningunum á Íslandi. Um prestsdótturina sem fannst jafnréttisumræðan einu sinni púkaleg, um mentorinn sem veðjaði á hana, um móðurhlutverkið og meðvituð hlé, um gögn, gervigreind og framúrskarandi fyrirtæki, og um það hvers vegna jafnrétti hefur aldrei verið meira áríðandi. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Elko, Nespresso og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

