
Á borgin að fela einkaðilum verkefnin eða sjá um þau sjálf?
Í þættinum er rætt við prófessor í stjórnmálafræði um þá leið sveitarfélaga að útvista verkefnum til einkaaðila. Hvaða flokkar vilja fela einkaaðilum verkefnin í Reykjavík? Hvaða flokkar vilja að borgin vinni öll verk sjálf? Kostnaður við útvistun verkefna er oft vanmetinn og sparnaður ofmetinn Eftirliti með einkaaðilum sem veita opinbera þjónustu er ábótavant Kjörnir fulltrúar missa yfirsýn og vald yfir málaflokkum sem útvistað er Gestur: Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði. Umsjón: Aðalheiður Ámundadóttir Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

