
Flokkaflakk, fjárlög og „man flu“ á Alþingi
Ingvar Þóroddsson yfirgaf Viðreisn í vikunni og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann er þriðji þingmaðurinn sem yfirgefur flokk sinn eða þingflokk í stjórnarmeirihlutanum á fáum mánuðum, en sá eini sem gengur til liðs við stjórnarandstöðuflokk. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir flokkaskiptin og hvað þau þýða fyrir ríkisstjórnina og Viðreisn. Í þættinum: 25 þingmenn hafa yfirgefið flokk á miðju kjörtímabili á þessari öld, um einn á ári að meðaltali. 21 karl og 4 konur Hvað greinir liðhlaup Ingvars frá flokkaskiptunum vorið 2011, þegar tekist var á um ESB og Icesave? Fjárlögin sem prófsteinn á stjórnarsamstarf og agi Sjálfstæðisflokksins Af hverju hefur enginn hlaupist undan merkjum í Samfylkingunni? Staða ríkisstjórnarinnar og vandinn innan Viðreisnar Í upphafi þáttar má heyra upptöku frá Alþingi Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

