
Sirkabát #14: Hvað er verðbólga eiginlega að mæla?
Í janúar 2026 uppfærði Hagstofan flokkunarkerfi vísitölu neysluverðs yfir í alþjóðlegan staðal sem nefnist COICOP 2018. En hvað þýðir það eiginlega - og hvernig er verðbólga mæld? Ásta Jenný Sigurðardóttir, teymisstjóri vísitölu neysluverðs á Hagstofunni, útskýrir hvernig neyslunni er skipt í flokka og hvaðan vogir mismunandi útgjaldaliða koma. Ef þú sérð tölu í fréttum og vilt vita meira, sendu okkur línu á sirkabat@gimaldid.is.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

