
Is this your show? Claim this page
PodCred
The people behind this show
People get invited back because someone remembered they were great.
PodCred is the verified record of who made this show. A credit here means people who were there confirmed the work.
Hosts
Who is on this show?
Think of the guest you still think about. The producer who makes the host sound smart. The editor who saves every episode. If a name is missing here, that person is invisible everywhere.
Add a creditEpisodes
2,951 episodesÚtvarpsþátturinn - Boltafréttir og breytingar hjá bikarmeisturunum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frumfluttur á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, félagaskipti í Bestu deildinni, landsliðið og fleira. Gestur þáttarins er Flosi Eiríksson...
Guðjóns Þórðarsonar minnst og sagan af kossinum fræga
Fyrrverandi fjölmiðlamaðurinn Ingólfur Hannesson ræddi við Kára Snorrason og fór yfir feril og kynni sín af Guðjóni Þórðarsyni sem lést á dögunum. Ingólfur starfar jafnframt hjá ÍTF og var farið lauslega yfir stöðu...
38 umferðir - Þú býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 11. umferð. Einar tæknimaður frá Livey kynnti nýja grafík til leiks og...
Innkastið - Lúxus landsliðsgluggi og takk Aron
Landsliðsútgáfa af Innkastinu. Ísland er komið aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og goðsögnin Aron Einar Gunnarsson kvaddi í frostinu á Laugardalsvelli. U21 landsliðið tapaði á grætilegan hátt í Grikklandi og EM...
Útvarpsþátturinn - Gauja Þórðar minnst eftir fimm stjörnu frammistöðu í Búlgaríu
Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri þennan laugardaginn og fara yfir allt það helsta. Guðjón Þórðarson er fallinn frá. Hans er minnst í þættinum. Hringt er til Búlgaríu þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur í gær og...
Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum
Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum. Þá er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við...
38 umferðir - Wayne Gretzky þekkir ekki Thierno Barry
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey kynnti...
Beint frá Benidorm - Horfast í augu við mistökin
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru mættir til Spánar þar sem íslenska landsliðið býr sig undir landsleik gegn Búlgaríu sem fram fer á föstudag. Í þessum sérstaka aukaþætti ræða þeir komandi verkefni, skoða líklegt...
Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu
Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu. Guðmundur...
Útvarpsþátturinn - Enginn í agabanni og lið fá einkunnir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur á fimmtudegi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn. Kári Snorrason er með þeim í umræðunni. Liðin í Bestu deildinni 2026 fá einkunnir fyrir tímabilið. Rætt...
38 umferðir - Pálínuboð
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Sindri fékk frábæran gest í fjarveru Alberts. Hann og Pálína Njarðvík (farmlifeiceland) tylltu sér í Coke stúdíóinu en Pálína er frábær fantasy spilari og hefur farið vel af...
Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir
Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu þann leik...
Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Silly season special! Nú eru það leikmannahræringarnar og slúðrið sem ráða ríkjum og hinn frægi þjálfarakapall í fullum gangi. Ljósin kveikt og allt á iði á...
38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er...
Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti...
Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick
Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir...
Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð
KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.
Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið. Seinna...
Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu?
Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi. Kristinn starfar nú sem eftirlitsdómari og...
38 umferðir - Engilbert Aron special
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti...
Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla
Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson. Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf...
Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð
Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær. Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu. Í...
Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?
Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum. Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool skiluðu,...
Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er rætt um...
38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl....
Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick
Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa...
Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?
Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar...
Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt...
Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn
Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn...
Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið
Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar...
38 umferðir - Wildcard og vítamín
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út...
Innkastið - Ósáttir en ósigraðir
Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er...
Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega...
Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur
Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð...
Hvað verður um Man City?
Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.
Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin
Það er komið að Uppbótartímanum eftir 20. umferð Bestu deild kvenna. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll komu sér fyrir í Coke stúdíóinu ásamt Herði Bjarnari Hallmarssyni, þjálfara Hauka, og fóru yfir umferðina. Valur og...
Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, er sérstakur gestur þáttarins en liðið vann Lengjudeildina og komst í bikarúrslit...
Harkið - Uppgjörsþáttur úr 2 deild
Harkið tók góða yfirferð á 2 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Frosti Brynjólfsson leikmaður...
38 umferðir - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð...
Enski boltinn - Leeds gegn Víkingi á næsta tímabili?
Það er góður andi yfir Leeds þessa dagana en liðið hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Agnar Þór Hilmarsson og Árni Þór Birgisson, stuðningsmenn Leeds, mættu í Coke stúdíóið í dag og fóru...
Uppbótartíminn - Geggjuð vegferð, biluð barátta og stórar landsliðsfréttir
Það er nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta, að þessu sinni. Þróttur varð bikarmeistari á dögunum, fyrsti stóri tillinn í sögu félagsins. Þróttur hefur verið á mikilli vegferð síðustu árin...
Harkið - Uppgjörsþáttur úr 3 deild
Harkið tók góða yfirferð á 3 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Hafþór Bjarki Guðmundsson...
Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi
Sérstök útgáfa af Innkastinu þar sem Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Þróttar og leikmaður ársins í Lengjudeildinni, er sérstakur gestur. Rætt er um sigur Þróttar í 100 milljóna leiknum, lið ársins í Lengjudeildinni,...
Innkastið - Skortur á reisn
Innkastið eftir lúxus laugardag. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.Víkingur varð meistari á Meistaravöllum. Það voru læti.Bestu liðin komust upp í Bestu deildina. Til hamingju Þróttur.KA rúllaði yfir Þór í...
Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu
Þátturinn er frumfluttur á föstudegi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir rosalega fótboltahelgi. Víkingur getur orðið meistari á Meistaravöllum, það verður barist upp á líf og dauða í Akureyrarslag og þá tilkynnti...
38 umferðir - Pascal engan undra hversu góður Gross er í fantasy
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu...
Innkastið - Læti undir ljósum Lautarinnar
Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd í Innkastinu að þessu sinni. Byrjað er að skoða umspil Lengjudeildarinnar og undanúrslitaleikirnir gerðir upp. Það ræðst á laugardaginn hvort Þróttur eða Fylkir spili í Bestu...
Harkið - Gæsaveiðar á Dalvík
Harkið fór yfir stærstu atvikin í loka umferð 2. og 3. deildar karla auk þess var rætt Gatorade bikarinn - Uppgjör 3 deildar - 11 mín - Uppgjör 2 deildar - 45 mín - Gatorade bikarinn - 01.21 mín Harkið er í boði...
Enski boltinn - Hörmulegir dómarar í bestu deild heims
Það vantaði ekki dramatíkina í Manchester slaginn á Old Trafford í gær en dómararnir voru í aðalhlutverki. Erling Haaland skoraði sigurmarkið, en það mark átti aldrei að standa. Byrjunin hefur verið erfið fyrir United á...
Útvarpsþátturinn - Blikar tóku bikar og æsispennandi umspil
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 12. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri í þættinum og rætt er við Hilmar Jökul, stuðningsmann Breiðabliks. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en Breiðablik...
38 umferðir - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu...
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?
Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón...
Harkið - Nágrannar en ekki vinir
Harkið fór yfir stærstu atvikin í 21. umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:14:42 Uppgjör 2.deild:40:53 Spá:01:17:14 Harkið er i boði Serrano, AB...
Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist
Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla? Guðmundur Aðalsteinn,...
Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal?
Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea. Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í...
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt...
Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina....
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á...
38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu...
Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað
Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City. Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir...
Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti. Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað...
Harkið - Hiti í 3. deildinni
Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00 Harkið er i boði Serrano, AB...
Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða
Elvar Geir og Benedikt Bóas eru í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim er Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn. Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag....
38 umferðir - Chelsea kom, Joao og sigraði
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu...
Enski boltinn - Martraðarbyrjun Man Utd og hver stoppar Arsenal?
Enska úrvalsdeildin hófst um helgina með látum en fyrstu umferðinni lauk í gærkvöldi. Manchester United og Tottenham fengu martraðarbyrjun, Arsenal lita illviðráðanlega út og það var baulað á Alexander Isak í...
Uppbótartíminn - Þú varst ekkert að spá þessu
Síðustu leikir í dag Bestu deild kvenna hafa heldur betur verið óútreiknanlegir margir. Tvö efstu liðin töpuðu og tvö neðstu liðin unnu bæði. Hvað er eiginlega að gerast í þessari deild? Núna eru bara tvær umferðir...
Harkið - Haukar verða alltaf bestir
Harkið fór yfir stærstu atvikin í nítjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:10:00 Uppgjör 2.deild:41:36 Spá:01:18 Harkið er i boði Serrano, AB...
Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft
Innkastið eftir 20. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór. Kaflaskipt fjör í Kópavogi, markaflóð í heimsókn til Akureyrar, Vatnhamar kvaddur, Jón Þór lét allt flakka í viðtali,...
Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 22. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt er um stóru fréttirnar í Bestu deildinni. Eiður Smári er tekinn við KA og Stjarnan rak aftur þjálfarann sinn. Jónas Guðni Sævarsson...
Enski boltinn - Arsenal er langlíklegasta liðið
Arsenal varð Englandsmeistari á síðasta tímabili eftir 22 ára bið. Núna, fyrir komandi keppnistímabil, er Arsenal langlíklegasta liðið til að vinna ensku úrvalsdeildina. El Jóhann og Engilbert Aron, stuðningsmenn...
Kaffispjallið: Ólafsvík, slitið krossband og lyftingar á leikdegi
Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH í Bestu deildinni, er án efa ein sú færasta í sínu fagi hér á landi. Hún er nýjasti gestur Kaffispjallsins og fer meðal annars yfir það þegar hún kláraði leik eftir að slíta krossband...
Harkið - Sjóðheitir Sindra menn
Harkið fór yfir stærstu atvikin í átjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:52 Uppgjör 2.deild:40:30 Spá:01:19:15 Harkið er i boði Serrano, AB...
Enski boltinn - Ætla að horfa saman á næsta úrslitaleik Tottenham
Það eru áhugaverðir tímar hjá Tottenham þessa stundina. Eftir tvö mjög erfið tímabil, þá er búið að leggja mikið í leikmannahópinn fyrir komandi tímabil. Roberto De Zerbi er á leið inn í sitt fyrsta heila tímabil sem...
Enski boltinn - Miklar breytingar hjá Newcastle
Upphitunin heldur áfram fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Núna fáum við að vita meira um stöðuna hjá Newcastle en þar hefur mikið gengið á í sumar. Jón Júlíus Karlsson og Ellert Ingi Hafsteinsson,...
Uppbótartíminn - Breiðablik rústaði toppslagnum
Það var aldrei spurning í toppslagnum í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik fór í Kaplakrika og vann þar þægilegan sigur. FH var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn en Blikarnir gerðu ótrúlega vel og eru núna með...
Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool
Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst næstkomandi föstudag. Liverpool tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að reka Arne Slot og ráða Andoni Iraola og núna hefst áhugaverður kafli hjá...
Harkið - VÖK sýningin
Harkið fór yfir stærstu atvikin í sautjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3. deild: 07:30 Uppgjör 2. deild: 42:58 Spá: 01:27:52 Harkið er i boði Serrano,...
38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag
Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke...
Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ
Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson. Sex marka jafntefli á fullum Meistaravöllum, Víkingar stöðvuðu göngu FH, Fram vann Stjörnuna,...
Útvarpsþátturinn - Gluggadómar, fyrirliðinn í Krikanum og enski að byrja
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Skoðað er hvaða félög gerðu bestu hlutina í sumarglugganum, hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni, rætt um...
Enski boltinn - Næsta skref hjá Aston Villa eftir Evróputitilinn
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Þeir Jón...
Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er...
38 umferðir - Yfirferð yfir öll 20 liðin í deildinni og skoðum liðsuppstillingar með og án Haaland
Annar þátturinn af 38 umferðum er kominn út en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og...
Harkið - Slagsmál í Mosó
Harkið fór yfir stærstu atvikin í sextándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 11:17 uppgjör 2.deild: 44:06 Spá:01:28:28 Gatorade bikarinn: 01:33:52...
Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari
Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestasérfræðingur er Gunnar Jarl Jónsson. KR vann stórskemmtilegan stórleik gegn Fram, Víkingar slökuðu á og töpuðu niður forystu,...
Uppbótartíminn - Gleði í neðri hlutanum
Magnús Haukur og Arnar Páll settust niður í hljóðver og fóru yfir 15. umferð Bestu deildar kvenna, spáðu í spilin fyrir komandi umferð og ræddu Evrópuævintýri Blika. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár?
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er...
Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan. Sérstakur gestur er Stefán Pálsson. Hitað er upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá...
Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á...
38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans
38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag. Fantasy Premier...
Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri
Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir leikina og alla helstu fréttamolana þar í kring. Deildin er að spilast á mjög áhugaverðan hátt. Eru KA og ÍBV á leiðinni...
Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju
Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir,...
Harkið - Great escape?
Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 9:20 uppgjör 2.deild: 33:30 spá: 01:02 Gatorade bikarinn: 01:08 Harkið...
Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum
Þrettán umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna og það er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört komu sér fyrir í hljóðveri og fóru yfir umferðina. Það eru stór félög í vandræðum...
Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum
Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Páll eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Er komin einhver hræðsla í liðin? Akureyrarslagurinn olli vonbrigðum, Stjörnumenn hörmulegir gegn Skagamönnum og Aron Einar átti stutt innlit.
Harkið - Þrennu VÖK
Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 06:00 Uppgjör 2.deild: 36:55 Spá: 01:10 Harkið er i boði Serrano, AB...
Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur
Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi...
Uppbótartíminn - FH óstöðvandi og til skammar fyrir Val
Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí. Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld. Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er...
Kaffispjallið: Uppköst, húðflúr á hálsi og Casillas eða Neuer?
Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar...
Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?
Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli. Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla...
HM hringborðið - Leiðinlegasti úrslitaleikur sögunnar?
Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið. Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar.
Útvarpsþátturinn - Glugginn galopinn og allir angar úti
Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta. Félagaskiptaglugginn er opinn, íslensk lið að spila um alla Evrópu, heil umferð framundan í...
HM hringborðið - Sá taktíski féll á prófinu
HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka....
Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals
Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars. Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn...
HM hringborðið: Þarf að minnka skjátímann hjá Alf Inge
Halldór Snær Georgsson og Runólfur Trausti Þórhallsson voru gestir í HM hringborðinu að þessu sinni. Farið var yfir 8-liða úrslitin og rýnt í spilin fyrir æsispennandi undanúrslit.
Árni Vill ræðir heimkomuna - „Þessi geðveiki virðist elta mig“
Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu. Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku. Hann ræðir einnig...
Útvarpsþátturinn - Áhugaverð umferð og leikar æsast á HM
Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri. Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð...
Cecilía Rán fer yfir allt milli himins og jarðar í nýju hlaðvarpi
Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli. Kaffispjallið er...
Innkastið - Áfall í Evrópusigri
Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar. Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir...
HM hringborðið - Azteca stóð undir nafni og falleg vinátta forsetanna
Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga. Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit.
Útvarpsþátturinn - Besta, bestir í Lengju og HM
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Byrjað er á íslenska boltanum. Besta deildin, tíðindi tengd henni og Víkingur er á leið í erfitt Evrópueinvígi. Svo er...
Posts
No posts yet. Posts Fotbolti.net shares on PodSubs, and what it publishes on Substack, YouTube and its own site, will show here.

Subscribe
Be on the front line of the show
Everything Fotbolti.net sends its own people, first. Resources, announcements, behind the scenes, events, and giveaways, straight from the host. No account needed.
- The resources the host shares with subscribers
- Announcements before anyone else hears
- Behind the scenes from the team
- Events, invitations, and giveaways
- Only what the host sends, nothing else
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.
















