Skip to content
PodSubs
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEvents
More
BlogPodCred
Menu
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEventsBlogPodCredNetworksSign in
Join nowSign in
  • Shows
  • People
  • Jobs
  • News
  • More
    • Guests
    • Events
    • Blog
    • PodCred
    • Networks
    Join nowSign in

Flimtan og fáryrði

Flimtan og fáryrði artwork

53 – Nazgúlaskrækir brjóstmylkinga

Nov 13, 202456 minAudioSeason 4, Episode 53
ShareXLinkedInFacebookWhatsAppEmail

Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan berst talið að jafnvel enn verri aðdáendum hans sem höfðu listamannsmetnað sjálfir. Eins ræða þeir Gesamtkunstwerk og „willing suspension of disbelief“, framburðarslekju, „verkamannaklassík“ og hið mikla dúettatímabil, ofstuðlun Wagners, áhrif hans á John Williams og JRR Tolkien, ægishjálma og grimmdarónæmi, lepp Óðins og Moshe Dayan, hundingja og brjóstumkennanlega dverga, háa f-ið og drengi í mútum, breytta endurtekningu og frjálslegar goðsagnatúlkanir. En er helsta einkenni sérfræðinga að ekkert skilst sem þeir segja? Var Mahler „Gloomy Gus“ og Freddy Mercury „grænseoverskridende“? Er klæmið að draga augað í pung? Ættu allir fundir Miðflokksins að hefjast á aríu Sigmundar? Þýðir hojotoho eitthvað? Líkar fasistabullum illa við nútímalist? Var pappadrekinn Katla ógnvekjandi á sínum tíma? Er skynsamlegt að taka af sér ósýnileikahring fyrir framan mannætukóngulær? Hversu lengi getur maður verið að draga sverð úr tré? Og hvernig tókst Lady Mondegreen að troða sér inn í þennan þátt?

Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

Hosts and Guests

Nobody is credited on this episode yet.

Credit the people on this episode

Be the first to rate this episode

More episodes

All episodes
  1. 76 — Maðurinn sem er alltaf að moka

    Nov 23, 202650 minAudio

    Ármann og Gunnlaugur ræða þjóðsagnasköpun alþjóðafjölmiðla nútímans og hvernig íslenska þjóðin verður þar ímynduð frumstæð náttúrubörn sem enn trúir á álfa. En álfar eru kannski falsvinir en ekki samir við sig frá öld...

    Credit the people on this episode

  2. 75 – Er heimurinn eins og ég held að hann sé?

    Nov 9, 202653 minAudio

    Gunnlaugur og Ármann eru „vinir litla mannsins“ og ræða aukapersónur í íslenskum fornsögum og yfirleitt. Talið berst að þætti áheyrandans í sköpun merkingar og hvernig tilfinningarlíf griðkvenna og smalamanna eru ekki...

    Credit the people on this episode

  3. 74 - Þórðargleðin er besta gleðin

    Oct 26, 202648 minAudio

    Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntaflokka sem nefnast Sígildar sögur, hvort sem í myndum eða ekki, og hvernig persónuleg bókmenntasaga einstaklinga er bæði með innlendum og þýddum bókum. Einnig ræða þeir kaup á...

    Credit the people on this episode

  4. 73 - Gubbað á salerni

    Oct 11, 202642 minAudio

    Gunnlaugur og Ármann ræða meistaraverk Svövu Jakobsdóttur, Gunnlaðarsögu, skáldskaparmjöðinn og Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar. Talið berst m.a. að landi sektarinnar, skjallbandalögum, hinum dæmigerða Íslendingi,...

    Credit the people on this episode

  5. 72 — Jónas og hinir

    Sep 28, 202649 minAudio

    Gunnlaugur og Ármann bregða af vananum með því að ræða þátt íslenskar bókmennta sem hvorugur hefur rannsakað, strákagengi og önnur burðarvirki menningarinnar á borð við „salon“ 19. aldar. Talið berst að Fjölnismönnum...

    Credit the people on this episode