
76 — Maðurinn sem er alltaf að moka
Ármann og Gunnlaugur ræða þjóðsagnasköpun alþjóðafjölmiðla nútímans og hvernig íslenska þjóðin verður þar ímynduð frumstæð náttúrubörn sem enn trúir á álfa. En álfar eru kannski falsvinir en ekki samir við sig frá öld til aldar. Talið berst einnig að gotneska pabbavorinu, aðdáendabréfum til Tolkiens, Haile Selassie, Einari Laxness, BBC, álfatyppinu, andaglasinu, miðbæingum og rottum. En er Gunnlaugur vélmenni? Veitir myrkur öryggiskennd? Hvers vegna hafa álfar minnkað á seinustu öld? Og er hægt að segja eitthvað annað við erlenda fréttamenn en gobbeldí gobbeldí?
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

