Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Viðreisn veikasti hlekkurinn | Harmageddon | S04E43
Það hriktir í stoðum ríkisstjórnarinnar og öllum á óvörum er Viðreisn orðin veikasti hlekkurinn í stjórnarsamstarfinu. Á kaffistofunum veltir fólk því fyrir sér hvert erindi flokksins sé nú þegar ESB-draumnum hefur verið hafnað og áherslur frjálslyndra hægrimanna hafa vikið fyrir auknum ríkisútgjöldum og skattahækkunum. Margir sjá nú fyrir sér formannsslag á næsta landsfundi Viðreisnar. Þar ber nafn Þorbjargar Sigríðar, dómsmálaráðherra, oftast á góma. Sumir telja hana geta komið flokknum út úr þeirri kreppu sem núverandi forysta hafi leitt hann í. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

