Skip to content
PodSubs
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEvents
More
BlogPodCred
Menu
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEventsBlogPodCredNetworksSign in
Join nowSign in
  • Shows
  • People
  • Jobs
  • News
  • More
    • Guests
    • Events
    • Blog
    • PodCred
    • Networks
    Join nowSign in

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir artwork

S04E67 - „ÞETTA ER SPILLING!“ – Brynjar Karl hjólar í Reykjavíkurborg

Nov 10, 202619 minAudioSeason 4, Episode 67
ShareXLinkedInFacebookWhatsAppEmail

Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og forsvarsmaður íþróttafélagsins Aþenu, mætir í Spjallið og fer yfir harðvítugar deilur félagsins við Reykjavíkurborg um framtíð íþróttastarfs í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl fer mikinn og sakar embættismenn borgarinnar um spillingu, vanrækslu og óeðlilega ráðstöfun opinbers fjár. Hann fullyrðir meðal annars að 89 milljónir króna hafi runnið frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar til ÍR á síðustu fjórum árum og kallar eftir svörum um hvernig þeim fjármunum hafi verið varið. Á sama tíma segir hann Aþenu hafa byggt upp öflugt íþrótta- og samfélagsstarf fyrir börn í Efra-Breiðholti, þar sem iðkendum hafi fjölgað úr örfáum í um 130. Félagið hafi skapað tækifæri fyrir börn af ólíkum uppruna, hjálpað stúlkum að komast í landslið og á háskólastyrki í Bandaríkjunum og lagt mikla áherslu á að ná til barna sem standa höllum fæti. Nú segir Brynjar að Reykjavíkurborg ætli að taka rekstrarsamninginn af félaginu um áramót og þannig stefna framtíð starfsins í hættu. Hann beinir sérstaklega spjótum sínum að Hildi Björnsdóttur og Bjarna Guðjónssyni og gagnrýnir nýjan meirihluta borgarinnar fyrir að standa ekki við þann stuðning sem hann telur félagið áður hafa notið. Brynjar krefst þess að borgaryfirvöld komi fram opinberlega og útskýri ákvarðanir sínar. Í viðtalinu er meðal annars rætt um: 89 milljónir króna sem Brynjar segir hafa runnið frá velferðarsviði til ÍR. Ásakanir um spillingu, meðvirkni og óeðlileg vinnubrögð í borgarkerfinu. Baráttu Aþenu fyrir aðstöðu í Austurbergi. Hvers vegna nýr meirihluti Reykjavíkurborgar hefur ekki tryggt félaginu áframhaldandi rekstrarsamning. Félagslega einangrun, fátækt og tækifæraskort barna í Efra-Breiðholti. Árangur Aþenu í að efla sjálfstraust, íþróttaþátttöku og framtíðarmöguleika ungs fólks. Brynjar Karl segist ekki ætla að gefast upp og kallar eftir opinberum umræðum þar sem borgaryfirvöld svari gagnrýni hans. Spjallið með Frosta Logasyni - S04E67 #Spjallið #BrynjarKarl #Reykjavíkurborg #Aþena #Brotkast

Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

Hosts and Guests

Nobody is credited on this episode yet.

Credit the people on this episode

Be the first to rate this episode

More episodes

All episodes
  1. Viðreisn veikasti hlekkurinn | Harmageddon | S04E43

    Nov 18, 202619 minAudio

    Það hriktir í stoðum ríkisstjórnarinnar og öllum á óvörum er Viðreisn orðin veikasti hlekkurinn í stjórnarsamstarfinu. Á kaffistofunum veltir fólk því fyrir sér hvert erindi flokksins sé nú þegar ESB-draumnum hefur...

    Credit the people on this episode

  2. S04E69 - Eldur Smári vill að RÚV biðjist afsökunar

    Nov 17, 202620 minAudio

    Eldur Smári Kristinsson kemur aftur í Spjallið með Frosta Logasyni, rétt áður en mál hans gegn RÚV og Bergsteini Sigurðssyni er tekið fyrir í Landsrétti. Tilefnið eru ummæli í kosningaviðtali þar sem sagt var að...

    Credit the people on this episode

  3. S04E68 - Þorbjörg um hert útlendingalög: „Við ætlum að gera kröfur“

    Nov 16, 202620 minAudio

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ræðir við Frosta Logason um útlendingamál og breytingarnar sem hún hefur lagt fyrir Alþingi á dvalarleyfiskerfinu. Hún segir að fólksfjölgunin á Íslandi, um fimmtíu...

    Credit the people on this episode

  4. Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans | Harmageddon | S04E42

    Nov 11, 20264 minAudio

    Til er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur í umdeildum málum. Fjölmiðlar sem styðja ekki ákveðnar rétttrúnaðarstefnur skuli...

    Credit the people on this episode

  5. Ísland verður eins og Svíþjóð! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E66

    Nov 9, 202620 minAudio

    Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif íslamskrar hugmyndafræði á vestræn...

    Credit the people on this episode