
Áttunda droppið frá war.gov
Send us Fan Mail GEIMSÝRAN - NÝTT UFO-GAGNADROPP FRÁ PENTAGON! 🛸 Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur birt áttunda gagnapakkann í PURSUE-verkefninu. Alls 43 færslur, þar á meðal leyniþjónustuskjöl, rannsóknarskýrslur og þrjú myndbönd af óútskýrðum fyrirbærum. Í þessum þætti köfum við ofan í það áhugaverðasta úr nýju gögnunum. CIA og sálfræðilegan hernað í kringum fljúgandi diska, 538 blaðsíðna rannsóknarskýrslu BAASS, tengsl Robert Bigelow og Harry Reid við leynilegar UFO-rannsóknir, skissur hins goðsagnakennda Lockheed-verkfræðings Kelly Johnson og óútskýrðar ratsjárgreiningar frá árinu 2023. Hvað segja þessi skjöl okkur um áratugalanga rannsóknarsögu bandarískra stjórnvalda? Hvað hefur raunverulega verið staðfest og hvað er enn á huldu? Við förum yfir gögnin, setjum þau í sögulegt samhengi og veltum fyrir okkur stóru spurningunum. Geimsýran - Skoðum allt, trúum engu. http://patreon.com/Geimsýran
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.
