
37. Óskar Magnússon: Það má aldrei missa móðinn
Óskar Magnússon lögfræðingur og rithöfundur er einn af þessum skemmtilegu mönnum sem hafa markað spor. Í þættinum ræðir hann um ferilinn, forstjórastóla, uppsagnir og hvernig best er að halda utan um hóp á vinnustað. Hann var ráðinn sem útgefandi Morgunblaðsins árið 2009 og var í því starfi til 2014. Það gekk mikið á í fyrirtækinu og segir hann að það skipti öllu máli að fólk sem vinni saman geti treyst hvort öðru. Eftir að hann hætti störfum ætlaði hann að hægja aðeins á sér en það hefur ekki orðið raunin. Í þættinum ber ástin á góma en hans stærsta lífsins gjöf var að kynnast eiginkonu sinni, Hrafnhildi Ingu Sigurðardóttur listmálara. Þátturinn er í boði: Icelandair SKINCARELAB í Smáralind Blue Lagoon Skin Science Fjallakofinn, fjallkofinn.is Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

