Skip to content
PodSubs
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEvents
More
BlogPodCred
Menu
ShowsPeopleGuestsJobsNewsEventsBlogPodCredNetworksSign in
Join nowSign in
  • Shows
  • People
  • Jobs
  • News
  • More
    • Guests
    • Events
    • Blog
    • PodCred
    • Networks
    Join nowSign in

Draugasögur

Draugasögur artwork

Villisca Axe Murder House

Nov 4, 20261 hr 10 minAudio
ShareXLinkedInFacebookWhatsAppEmail

Í dag ætlum við að taka ykkur til ársins 2020. Í júní það ár gáfum við út fyrsta þáttinn okkar undir nafninu Draugasögur Podcast. Sá þáttur fjallaði um eitt frægasta og óhugnanlegasta morðmál í bandarískri sögu - Villisca Axe Murder House. 🪓🏠 Þetta var bókstaflega byrjunin á öllu hjá okkur. Fyrsti þátturinn. Fyrsta sagan. Fyrsta skiptið sem við settum Draugasögur Podcast út í heiminn! Og síðan þá hafa liðið mörg ár, ótrúlega margir þættir og endalausar sögur sem við höfum fengið að segja ykkur. 🎙️🖤 En Villisca málið hefur alltaf verið sérstakt. Þetta er eitt af þessum málum sem er svo rosalegt, svo furðulegt og fullt af spurningum að okkur hefur lengi langað að taka það fyrir aftur og gera það almennilega. Þess vegna ákváðum við að fara alla leið og endurgera Villisca þáttinn frá grunni. Í dag fáið þið tvöfaldan þátt þar sem við förum yfir allt sem þið þurfið að vita um þetta hræðilega mál: hvað gerðist þessa nótt, hverjir voru í húsinu, rannsóknina, kenningarnar og allar furðulegu vendingarnar sem hafa fylgt þessu máli í meira en heila öld. 🕯️🪓 En við ætlum líka að fara í smá flashback í gamla Draugasögur Podcast stílinn. Þegar við vorum að byrja þá vorum við oft að kafa ofan í paranormal rannsóknir og hlusta á upptökur sem fólk hafði náð á svona stöðum. Í þessum þætti ætlum við því líka að skoða EVP upptökur sem hafa verið teknar inni í Villisca húsinu. 👻🎙️ Þetta eru upptökur sem paranormal rannsakendur hafa náð þarna inni í gegnum árin og sumar þeirra eru taldar vera með skýrustu EVP skilaboðum sem hafa náðst á svona stað. Í þessum þætti fáið þið því að heyra upptökurnar sjálf, við ætlum að spila þær, hlusta á þær með ykkur og ræða hvað gæti mögulega verið að gerast í þeim. 🔊👀 Fyrir okkur er þetta líka svolítið stór stund. Að fara aftur í fyrsta málið okkar - þegar podcastið okkar byrjaði og segja söguna aftur, núna mörgum árum og þúsund þáttum síðar! Það er svolítið sérstök tilfinning 🖤 En nú skulum við fara aftur til ársins 1912… í lítið hús í bænum Villisca í Iowa… þar sem ein nótt breytti öllu. 🪓🏠🕯️ ⬜️ ◻️◽️▫️•▫️◽️◻️ ⬜️⬜️ ◻️◽️▫️•▫️◽️◻️ ⬜️ 🆓 Ef þig langar að vera með okkur á milli þátta þá langar okkur að bjóða ykkur í samfélagið okkar á Patreon sem er FRÍTT! Þar deilum við hinu og þessu sem þið sjáið hvergi annars staðar 😉 Endilega komið og verið með okkur við hlökkum til að sjá þig þar! Smelltu á linkinn og veldu JOIN FOR FREE: JOIN FOR FREE samfélagið okkar á Patreon! 👈🏻 👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻👆🏻 KOMDU Í DRAUGASÖGU FJÖLSKYLDUNA 🌙 Ef þú vilt bíó í eyrun 🎧 og tilheyra hópi sem deilir ástríðu fyrir draugasögum → þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig! PRÓFAÐU FRÍTT Í VIKU SAMFÉLAGIÐ OKKAR Á PATREON Skráðu þig í áskrift á Spotify Frábæru samstarfsfélagar okkar eru: HELL ICE COFFE HUNDATENGSL Leanbody Draugasögur á Samfélagsmiðlum: Instagram Facebook Tiktok

Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

Hosts and Guests

Nobody is credited on this episode yet.

Credit the people on this episode

Be the first to rate this episode

More episodes

All episodes
  1. FAUST HOUSE

    Nov 18, 202645 minAudio

    Það er eitt dularfyllsta og illræmdasta hús í Evrópu en sennilega með því glæsilegasta í Prag. Í húsinu hafa öldum saman átt sér stað tilraunir með svartagöldrum, kukli og alkemíu. Nágrannar hafa greint frá undarlegum...

    Credit the people on this episode

  2. BÓKIN - John Drenner Jr. málið

    Nov 11, 202646 minAudio

    Sumarið 2003 finnur John Drenner Jr. bók með undarlegum táknum í skúr í skóginum á bakvið hús ömmu sinnar. Um leið og bókin var opnuð 📖 varð líf Johns aldrei aftur eins. Raddir í myrkrinu, skuggar sem færðust af sjálfu...

    Credit the people on this episode

  3. MIMICS

    Sep 24, 202652 minAudio

    Undanfarnar vikur hefur eitt fyrirbæri tekið yfir TikTok. 📱 Hundruðir myndbanda. Sama mynstrið. Sama óþægilega tilfinningin. 😰 Fólk heyrir rödd sem kallar á það. Með nafni. Og þessi rödd er kunnuleg. Kannski bankar...

    Credit the people on this episode

  4. The Third Man Phenomenon

    Sep 19, 202645 minAudio

    Hefurðu einhvern tímann heyrt sögur af fólki sem lenti í lífshættu… og sór að það hefði ekki verið eitt? 👣 Þau tala um nærveru. Rólega rödd. Einhvern sem gengur með þeim þegar allt er að hrynja. Þetta kallast The Third...

    Credit the people on this episode

  5. Glasgow Necropolis

    Sep 9, 20261 hr 2 minAudio

    Þetta er fallegur staður með gönguleiðum sem mótaðar eru af fjöldagröfum, kistum sem fallið hafa um hvor aðra og rotnað saman við líkin sem eru allstaðar undir fótum þeirra sem ganga þar um. Í farsóttum voru þeir látnu...

    Credit the people on this episode