
Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú
Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls. Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum - allt er þetta sett í raunverulegt samfélagslegt samhengi frumkirkjunnar. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Tilvísun: The Untold Story / Frank Viola
Audio and video play straight from the show's own hosting. PodSubs stores and serves no media.

